Eigandi eða skráður umráðamaður bifreiðar ber skaðabótaábyrgð á því tjóni sem hlýst af notkun bifreiðarinnar í umferðinni. Sá sem fyrir tjóni verður í umferðinni getur gert kröfur um bætur til þess tryggingafélags sem vátryggir ökutækið sem tjóninu veldur. Það sem miklu máli skiptir í þessu samhengi eru tilkynningarfrestirnir. Meginreglan er sú að ef tjónþoli tilkynnir ekki tryggingafélaginu um tjón sitt innan árs frá því að hann fékk vitneskju um tjónið, getur hann glatað rétti sínum til bóta.
Hver ber ábyrgð og hvernig er krafist bóta?
Sú regla gildir í íslenskum rétti að eigandi eða skráður umráðamaður bifreiðar þarf að bæta það tjón sem hlýst af notkun þess, jafnvel þótt slysið verði hvorki rakið til bilunar né klaufaskapar ökumanns. Þetta er kallað hlutlæg ábyrgð og birtist hún í 4. gr. laga nr. 30/2019 um ökutækjatryggingar. Af þessum sökum er skylda samkvæmt íslenskum lögum að vera með ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda á öllum skráningarskyldum bifreiðum.
Sá sem slasast eða verður fyrir tjóni þarf ekki að elta uppi ökumann eða eiganda bifreiðarinnar sem olli tjóninu til að knýja fram greiðslu. Samkvæmt 44. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga á tjónþoli svokallaðan beinan kröfurétt og getur beint kröfu sinni milliliðalaus að tryggingafélagi þess sem olli tjóninu.
Hvað á að gera á slysstað?
Upphaf allra umferðarslysamála byrjar á vettvangi slyssins. Ráðlagt er að taka sjálfur ljósmyndir af ökutækinu eða ökutækjunum sem í hlut eiga og af vettvangi ef kostur er á því án þess að valda óþarfa hættu fyrir þig eða aðra í umferðinni. Þá er mikilvægt að útbúa skýrslu vegna slyssins og meginreglan er sú að lögregla rannsaki slys í umferðinni. Í vægari slysum vísar lögreglan málum á Aðstoð og öryggi ehf. Sé hvorugt hægt skulu ökumenn alltaf gæta þess að fylla sameiginlega út tjónaskýrslu. Þá má benda á að samkvæmt 14. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er skýrt kveðið á um að allir sem lenda í umferðaróhappi eigi að stoppa, veita hjálp, gefa upp nafn og heimilisfang og tilkynna lögreglu um málið eftir þörfum. Þetta skiptir miklu máli upp á sönnunarstöðu, því tryggingafélögin þurfa skýr gögn um atvik málsins til að geta greitt út bætur. Þess vegna er mikilvægt þegar slys verður að tilkynna lögreglu um slysið, kalla til Aðstoð og öryggi eða fylla út tjónaskýrslu á vettvangi slyss, jafnvel þó ekkert liggi fyrir um líkamstjón á fólki á þeirri stundu.
Hvað er hægt að fá bætt?
Ef fólk slasast í umferðarslysi getur það átt rétt á bótum fyrir það fjárhagslega tap og þau óþægindi sem hljótast af slysinu. Samkvæmt 1. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 tekur þetta til tapaðra vinnutekna, sjúkrakostnaðar og svokallaðra þjáningabóta á meðan fólk er að jafna sig. Ef afleiðingarnar eru varanlegar eru einnig greiddar bætur fyrir varanlegan miska, þ.e. líkamlega skerðingu sem hefur áhrif á daglegt líf, og varanlega örorku, þ.e. skerta getu til að vinna sér inn tekjur í framtíðinni. Hinar síðastgreindu bætur vegna varanlegrar örorku geta verið umtalsverðar og því eru miklir hagsmunir fólgnir í því að bæði tilkynna um líkamstjón og leita ráðlegginga lögmanna tafarlaust þegar grunur er um varanlegar afleiðingar vegna umferðarslyss.
Tilkynningarfrestir
Í tilfelli umferðarslysa er algjört lykilatriði að passa upp á tilkynningarfresti gagnvart tryggingafélögunum, annars getur tjónþoli átt í hættu á að glata bótarétti sínum að fullu.
Eins árs reglan um tilkynningu:Sá sem verður fyrir tjóni verður að láta viðkomandi tryggingafélag vita af kröfu sinni innan árs frá því að hann fékk vitneskju um atvikið. Ef þetta er ekki gert getur réttur til bóta glatast alfarið, sbr. 51. og 124. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga.
Eins árs reglan ef kröfu er hafnað:Ef tryggingafélagið skoðar málið og hafnar því formlega að greiða bætur, hefur tjónþoli jafnframt eitt ár til að fara með málið fyrir dómstóla eða úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum til þess að reyna að fá afstöðu tryggingafélagsins hnekkt sér í vil.
Almenn fyrning:Samkvæmt 23. gr. laga nr. 30/2019 um ökutækjatryggingar fyrnast kröfur um bætur vegna líkamstjóns á tíu árum frá slysdegi. Kröfur um eignatjón, eins og skemmdir á bifreiðinni sjálfri, fyrnast hins vegar almennt á fjórum árum frá því að fólk gat fyrst leitað réttar síns.
Okkar ráð
Ef þú, eða einhver sem þú þekkir, lendir í umferðarslysi þá er lykilatriði að kalla á lögreglu eða aðra aðila sem aðstoða í umferðaróhöppum, t.d. Aðstoð og öryggi ehf., svo hægt sé að skrásetja slysið, taka myndir af vettvangi og fá atvikalýsingu sem fyrst í kjölfar slyssins. Góð regla er að taka niður bílnúmer hins/hinna aðilanna og skrá hjá sér fyrir tilkynningu til tryggingafélags. Flestir símar eru búnir myndavélum nú til dags og því tilvalið að taka jafnframt ljósmyndir á eigin farsíma af bifreiðum og vettvangi slyss. Í þessum efnum má segja að tjónþoli geti aldrei tryggt sönnunarstöðu sína of vel.
Í kjölfarið skal leita sér læknisaðstoðar. Margir eiga það til að reyna harka af sér og sjá til hvort verkir eða áverkar jafni sig ekki með tímanum. Slíkt getur verið metið tjónþola í óhag og því mikilvægt ef fólk kennir sér meins, að leita einfaldlega til læknis, hvort sem það er á bráðamóttöku, heilsugæslu eða læknavakt. Því er mikilvægt að leita eins fljótt og hægt er til læknis svo hægt sé að skrásetja þessa fyrstu áverka í sjúkrasögu tjónþola, svo hún geti stutt við sönnunarstöðu hans.
Jafnframt er mikilvægt að tilkynna slysið eins fljótt og auðið er til viðkomandi tryggingafélags/tryggingafélaga. Best væri að vera með bæði/öll bílnúmer sem við komu í umferðaróhappinu. Við mælum með því að leita ráðgjafar lögmanns í því ferli, flestar lögmannsstofur sem sérhæfa sig í innheimtu slysabóta sjá um að tilkynna um líkamstjón fyrir hönd umbjóðenda sinna. Hjá Bótamál.is er hægt að bóka fyrsta fund með lögmönnum, tjónþola að kostnaðarlausu, til að kanna réttarstöðu viðkomandi og hvort tilefni sé til að sækja bætur á hendur tryggingarfélagi eða öðrum tjónvöldum.
Grein eftir Kolbrúnu Björk Ágústsdóttur lögfræðings hjá Bótamálum ehf.